Tony Bloom, eigandi Brighton, telur það gríðarlega ósanngjarnt ef fella á knattspyrnufélög úr ensku úrvalsdeildinni án þess að klára tímabilið.
Hann viðurkennir að Liverpool eigi úrvalsdeildartitilinn skilið en telur ósanngjarnt að lið í fallsvæði fái ekki tækifæri til að bjarga sér.
Brighton er tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið og því öruggt með sæti sitt í deildinni ef ákveðið verður að slútta tímabilinu.
„Ég sé ekki hvernig er hægt að fella lið úr úrvalsdeildinni án þess að klára leiktíðina. Það er algjörlega óhugsandi að lið falli með litlum stigamun án þess að allir leikir séu kláraðir," segir Bloom.
„Liverpool á augljóslega skilið að vinna titilinn og það er hægt að gefa efstu sætunum þátttökurétt í Evrópukeppnum, en það gengur ekki fyrir fallbaráttuna. Ég sé það ekki gerast að lið verði felld án þess að klára tímabilið."
Bournemouth, Aston Villa og Norwich eru í fallsætum sem stendur. Bournemouth er þar á markatölu og á Aston Villa leik til góða. Sigur í þeim leik kæmi Villa úr fallsvæðinu.
„Ég býst ekki við að stjórnendur félaga muni kjósa með því að fella lið. Það þarf 70% atkvæða fyrir meirihluta í þessum kosningum."
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 28 | 20 | 4 | 4 | 70 | 24 | +46 | 64 |
2 | Liverpool | 28 | 19 | 7 | 2 | 65 | 26 | +39 | 64 |
3 | Man City | 28 | 19 | 6 | 3 | 63 | 28 | +35 | 63 |
4 | Aston Villa | 29 | 17 | 5 | 7 | 60 | 42 | +18 | 56 |
5 | Tottenham | 28 | 16 | 5 | 7 | 59 | 42 | +17 | 53 |
6 | Man Utd | 28 | 15 | 2 | 11 | 39 | 39 | 0 | 47 |
7 | West Ham | 29 | 12 | 8 | 9 | 46 | 50 | -4 | 44 |
8 | Brighton | 28 | 11 | 9 | 8 | 50 | 44 | +6 | 42 |
9 | Wolves | 28 | 12 | 5 | 11 | 42 | 44 | -2 | 41 |
10 | Newcastle | 28 | 12 | 4 | 12 | 59 | 48 | +11 | 40 |
11 | Chelsea | 27 | 11 | 6 | 10 | 47 | 45 | +2 | 39 |
12 | Fulham | 29 | 11 | 5 | 13 | 43 | 44 | -1 | 38 |
13 | Bournemouth | 28 | 9 | 8 | 11 | 41 | 52 | -11 | 35 |
14 | Crystal Palace | 28 | 7 | 8 | 13 | 33 | 48 | -15 | 29 |
15 | Brentford | 29 | 7 | 5 | 17 | 41 | 54 | -13 | 26 |
16 | Everton | 28 | 8 | 7 | 13 | 29 | 39 | -10 | 25 |
17 | Luton | 29 | 5 | 7 | 17 | 42 | 60 | -18 | 22 |
18 | Nott. Forest | 29 | 6 | 7 | 16 | 35 | 51 | -16 | 21 |
19 | Burnley | 29 | 4 | 5 | 20 | 29 | 63 | -34 | 17 |
20 | Sheffield Utd | 28 | 3 | 5 | 20 | 24 | 74 | -50 | 14 |
Athugasemdir