Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. apríl 2020 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Strasser um Zlatan: Hann elskaði mig eins og bróður
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Rodney Strasser, miðjumaður frá Síerra Leóne, var samherji Zlatan Ibrahimovic hjá AC Milan og unnu þeir ítölsku deildina saman tímabilið 2010-11.

Ítalski miðillinn Sottoporta sendi Strasser línu á Instagram og tók áhugavert viðtal við hann, þar sem hann ræddi meðal annars samband sitt við Zlatan.

„Þegar ég ólst upp spilaði ég fótbolta á götum Síerra Leóne sem var mjög erfitt. Við vorum ekki í skóm og boltinn var gerður úr plasti. Þegar ég hugsa út í það þá verð ég að þakka Guði fyrir að vera á góðum stað í dag," sagði Strasser, sem er 30 ára gamall og samningsbundinn TPS Turku í Finnlandi.

„Ég hef ennþá mikla ástríðu fyrir þessum leik og er mjög stoltur af því sem ég hef afrekað. (Mohammed) Kallon var fyrstur frá Síerra Leóne til að spila fyrir stórlið. Á eftir honum er ég sá eini til að hafa afrekað það.

„Ég mun aldrei gleyma tímum mínum hjá Milan. Ég skoraði mikilvægt mark gegn Cagliari sem endaði á að skipta sköpum í titilbaráttunni. Ég man þegar við fögnuðum saman titlinum eftir sigur í síðasta leik, það var ógleymanleg stund. Ég man þegar Boateng byrjaði að dansa eins og Michael Jackson."


Strasser spilaði aðeins níu keppnisleiki á fimm árum hjá AC Milan. Hann var lánaður til Lecce og Parma og að lokum keyptur til Genoa, sem notaði hann aldrei.

„Ég man eftir Ibra, hann elskaði mig eins og lítinn bróður. Í hádegismatnum sat ég alltaf við hliðina á honum við hringborðið og borðaði það sem hann ákvað fyrir okkur báða.

„Ég man eftir nágrannaslag sem við unnum þökk sé sigurmarki frá Ibra. Til að fagna sigrinum gaf AC Milan leikmönnum úr en það var ekki til nóg fyrir alla í leikmannahópnum.

„Þegar við borðuðum saman eftir leikinn spurði Ibra hvar úrið mitt væri. Ég svaraði að ég væri ungur og hafi þess vegna ekki fengið úr. Næsta dag mætti hann á æfingu og gaf mér úr sem var 9000 evru virði."


Meðal samherja Strasser hjá Milan voru Robinho, Antonio Cassano, Clarence Seedorf, Gennaro Gattuso, Alessandro Nesta og Thiago Silva.
Athugasemdir
banner
banner
banner