Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. maí 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Fjórir leikir sýndir beint
Skagamenn hafa farið feykilega vel af stað í sumar.
Skagamenn hafa farið feykilega vel af stað í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er veisla framundan fyrir íslenska knattspyrnuunnendur því allir þrír leikir dagsins í Pepsi Max-deildinni verða sýndir beint á Stöð 2 Sport 2 og 3.

ÍBV og Víkingur R. mætast í botnslag í Vestmannaeyjum og við upphaf síðari hálfleiks verður viðureign Stjörnunnar og KA flautuð á í Garðabæ.

Stjarnan er í þriðja sæti, með átta stig eftir tvo sigra í röð, á meðan KA er aðeins með þrjú stig sem komu gegn Íslandsmeisturum Vals.

Breiðablik tekur að lokum á móti ÍA í toppslagnum. Liðin deila toppsætinu með 10 stig hvort.

Veislan hefst þó tveimur tímum fyrir Pepsi Max-leikina. Fjölnir tekur á móti ÍA í Inkasso-deild kvenna og verður sá leikur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4. Bæði lið gerðu jafntefli í fyrstu umferð.

Um er að ræða aðra umferð tímabilsins og á topplið Þróttar R. útileik gegn Haukum. Liðin mættust í Mjólkurbikarnum í síðustu viku og hafði Þróttur betur.

Grótta mætir þá Sindra í 2. deild kvenna og einnig eru tveir leikir á dagskrá í 4. deild karla.

Pepsi Max-deild karla
16:00 ÍBV-Víkingur R. (Hásteinsvöllur - Stöð 2 Sport 3)
17:00 Stjarnan-KA (Samsung völlurinn - Stöð 2 Sport 2)
19:15 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur - Stöð 2 Sport 2)

Inkasso deild kvenna
14:00 ÍR-Augnablik (Hertz völlurinn)
14:00 Fjölnir-ÍA (Extra völlurinn - Stöð 2 Sport 4)
14:00 Haukar-Þróttur R. (Ásvellir)
14:00 Grindavík-Afturelding (Mustad völlurinn)
15:00 Tindastóll-FH (Sauðárkróksvöllur)

2. deild kvenna
14:00 Grótta-Sindri (Vivaldivöllurinn)

4. deild karla - A-riðill - 4. deild karla
16:00 Mídas-Samherjar (Víkingsvöllur)

4. deild karla - C-riðill - 4. deild karla
12:00 Berserkir-Hörður Í. (Víkingsvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner