Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. maí 2019 13:40
Ívan Guðjón Baldursson
Zidane: Það besta er að tímabilið er allavega búið
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane er ánægður með að þessu tímabili sé loksins lokið. Þetta sagði hann eftir 0-2 tap Real Madrid gegn Real Betis í lokaumferð spænska deildartímabilsins.

Real hefur aðeins unnið fimm leiki af ellefu síðan Zidane tók aftur við og lýkur keppni í 3. sæti spænsku deildarinnar.

„Það besta sem er búið að gerast fyrir okkur er að tímabilið er allavega búið. Það hefur verið erfitt að halda leikmönnum við efnið, félagið var ekki að keppa um neitt frá því að ég tók við," sagði Zidane.

„Við megum aldrei gleyma þessu tímabili, við verðum að læra af þessu. Við höfum engar afsakanir fyrir frammistöðunni í dag.

„Ég get séð að leikmennirnir vilja gera betur en á þessum tímapunkti þá geta þeir það einfaldlega ekki. Ég er viss um að við getum snúið þessu ástandi við í sumar og mætt sterkir til leiks á næsta tímabili."


Athugasemdir
banner
banner