Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. maí 2020 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reus missir af Bayern - Spilar hann meira á tímabilinu?
Marco Reus.
Marco Reus.
Mynd: Getty Images
Marco Reus, fyrirliði Borussia Dortmund, mun missa af stórleiknum gegn Bayern München og líkur eru á því að hann komi ekki meira við sögu á þessu tímabili.

Þetta segir í þýski fjölmiðillinn Bild.

Reus var fjarri góðu gamni þegar Dortmund vann 4-0 sigur á erkifjendum sínum í Schalke er þýska úrvalsdeildin hófst aftur um síðustu helgi. Meiðsli hafa verið að plaga Reus frá því í febrúar síðastliðnum.

Leikurinn gegn Bayern, sem fram fer næstkomandi þriðjudag, er gríðarlega mikilvægur upp á titilbaráttuna að gera. Dortmund er fjórum stigum frá toppliði Bayern og þarf svo sannarlega á sigri að halda, en leikurinn er í Dortmund.

Axel Witsel og Emre Can verða líklega komnir aftur inn í lið Dortmund fyrir leikinn gegn Bayern.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner