Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. maí 2022 20:29
Brynjar Ingi Erluson
Inter og Leeds vilja fá Minamino
Takumi Minamino
Takumi Minamino
Mynd: Getty Images
Japanski sóknartengiliðurinn Takumi Minamino gæti farið frá Liverpool í sumar en bæði Inter og Leeds hafa sýnt leikmanninum mikinn áhuga undanfarna daga.

Minamino, sem er 27 ára gamall, hefur verið í varahlutverki hjá Liverpool á þessari leiktíð.

Hann hefur aðeins spilað 176 mínútur í ensku úrvalsdeildinni en samt tekist að skora þrjú mörk þar.

Minamino var þá markahæsti leikmaður Liverpool í báðum bikarkeppnunum á Englandi og átti því stóran þátt í að vinna keppnirnar.

Liverpool er nú reiðubúið að leyfa honum að fara í sumar en félagið vill 17 milljónir punda.

Ítalska félagið Inter hefur mikinn áhuga og ef þá er Leeds einnig með augun á honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner