Mohamed Salah spilar sinn fyrsta leik á HM þegar Egyptaland mætir Rússlandi í dag.
Heimamenn gera tvær breytingar á byrjunarliðinu sem valtaði yfir Sádí-Arabíu með fimm mörkum gegn engu.
Alan Dzagoev meiddist gegn Sádum og leysti Denis Cheryshev stöðu hans fullkomlega af hólmi. Cheryshev byrjar leikinn í dag og er með Artem Dzyuba fyrir framan sig, sem tekur stöðu Fyodor Smolov sem fremsti maður.
Salah er eina breytingin í byrjunarliði Egypta, sem töpuðu 1-0 fyrir Úrúgvæ í fyrstu umferð. Þetta er því leikur sem Egyptar verða helst að vinna til að komast upp úr riðlinum.
Rússland: Akinfeev; Fernandes, Kutepov, Ignashevich, Zhirkov; Gazinskiy, Zobnin, Samedov, Golovin; Cheryshev; Dzyuba.
Egyptaland: El Shenawy; Fathy, Gabr, Hegazy, Abdelshafy; Elneny, Hamed; Salah, El Said, Trezeguet; Mohsen.
Athugasemdir