Emil Hallfreðsson, leikmaður íslenska landsliðsins birti myndskeið í gærkvöldi á Instagram síðu sinni þar sem sjá mátti Pétur Örn Gunnarsson, einn af sjúkraþjálfurum íslenska landsliðsins allan út í sárum.
Pétur Örn hafði skellt sér í hjólatúr en lenti í óhappi og fallið af hjólinu.
Pétur Örn hafði skellt sér í hjólatúr en lenti í óhappi og fallið af hjólinu.
„Hjálmurinn bjargaði," sagði Emil Hallfreðsson í myndskeiðinu og Pétur tók undir þau orð og bætti við að hjálmurinn væri sennilega ónýtur.
Það er gott að ekki fór verr því Pétur Örn sinnir mikilvægu starfi hér í Rússlandi ásamt sjúkraþjálfarateymi íslenska liðsins.
Hægt er að sjá myndir af Pétri hér að neðan.
Athugasemdir