Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 19. júní 2019 19:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Stressaðasti maðurinn á vellinum hlýtur að vera Hannes"
Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Ari Einarsson.
Anton Ari Einarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það hefði verið áhætta," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, í viðtali við Guðmund Bendiktsson á Stöð 2 Sport fyrir leikinn gegn KR sem hefst klukkan 19:15.

Gummi spurða Óla út í það hvort Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson hefði getað spilað síðasta leik gegn ÍBV.

Hannes er tilbúinn í slaginn og er í marki Vals gegn KR í kvöld.

Hannes fékk leyfi til að fara í brúðkaup hjá Gylfa Sigurðssyni, samherja sínum í íslenska landsliðinu, um liðna helgi en hann var að glíma við meiðsli.

Hann missti því af 5-1 sigri Vals gegn ÍBV en Anton Ari Einarsson stóð þá í markinu.

Þorkell Máni Pétursson, sérfræðingur Pepsi Max-markanna, telur að enginn sé stressaðari á vellinum í kvöld en Hannes.

„Stressaðasti maðurinn á vellinum hlýtur að vera Hannes. Ef þessi leikur tapast þá er þetta farið að líta mjög illa út með Hannes í markinu, með allri virðingu fyrir því. Við skulum segja blessunarlega er Hannes ekki meiddur því ef Anton hefði tekið þennan leik og hann hefði endað með sigri, þá væri landsliðsmarkvörðurinn líklega orðinn varamarkvörðurinn í Val," sagði Máni.

„Þú velur alltaf þitt besta lið," sagði Leifur Garðarsson. „Ég held að ein af ástæðunum fyrir því að Hannes var fenginn til liðsins var það að hann er betri stjórnandi fyrir aftan vörnina en Anton."

Hérna verður textalýsing frá leiknum.

Með sigri í kvöld geta KR-ingar endurheimt toppsætið í deildinni. Breiðablik skaust á toppinn með 3-1 útisigri á Stjörnunni í gærkvöldi. Valur er hinsvegar tíu stigum á eftir KR og því mikilvægt fyrir liðið að ná sigri í kvöld. Útlitið yrði ansi svart fyrir rauða Valsmenn tapi þeir leiknum í kvöld.

Sjá einnig:
Fullyrðir að Hannes hafi haft klásúlu í samningnum um brúðkaup Gylfa
Athugasemdir
banner
banner