Everton hefur sett sig í samband við varnarmanninn Thiago Silva samkvæmt fjölmiðlamanninum Duncan Castles.
Silva er á förum frá franska stórliðinu Paris Saint-Germain eftir að keppni í Meistaradeild Evrópu lýkur í haust. Silva hefur verið hjá PSG frá 2012 og hefur hann gegnt algeru lykilhlutverki í vörn franska liðsins.
Castles segir að Everton hafi boðið varnarmanninum reynslumikla tveggja ára samning.
Ef Silva ætlar að fara í Everton þá þarf hann mjög líklega að taka á sig launalækkun frá stórum samningi hans hjá PSG.
Hinn 35 ára gamli Silva hefur einnig verið orðaður við Arsenal, en ef hann fer til Everton þá verður hann liðsfélagi Gylfa Þór Sigurðssonar en íslenski landsliðsmaðurinn hefur verið á mála hjá Everton frá 2017.
Everton offer two-year contract to Thiago Silva. Brazil international is also on Tottenham’s list of potential recruits. https://t.co/dxyMjO1JHv pic.twitter.com/Lzh0TGcz71
— Duncan Castles (@DuncanCastles) June 18, 2020
Athugasemdir