„Við gerðum mjög vel í erfiðum leik," sagði portúgalski miðjumaðurinn Bruno Fernandes eftir 1-1 jafntefli Tottenham og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.
Fernandes jafnaði metin úr vítaspyrnu þegar tæpar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
„Þeir skoruðu eftir skyndisókn en við vorum alltaf inn í þessum leik. Við fengum mörg færi. Við viljum vinna alla leiki en þetta eru góð úrslit. Við gerðum mjög vel eftir langt hlé."
Stuðningsmenn Manchester United fengu í fyrsta sinn að sjá Fernandes spila með Paul Pogba á miðjunni. Pogba fiskaði vítið sem Fernandes skoraði úr.
„Ég er með góða tengingu við alla í liðinu. Paul vann inn vítaspyrnuna og ég sparkaði í boltann," sagði Fernandes.
Athugasemdir