Fram gerði góða ferð á Selfoss nú í kvöld er þeir sigruðu Selfoss örugglega 1-3 á JÁVERK-vellinum. Ólafur Tryggvi Brynjólfsson aðstoðarþjálfari Fram var gífurlega ánægður með liðið í kvöld.
„ Við vorum virkilega góðir í dag og menn gerðu það sem þeir áttu að gera. Vikan okkar var gríðarlega öflug æfingalega séð. Við náðum að laga þá hluti sem við gerðum illa á móti Víking Ólafsvík"
Framarar gáfu fá færi á sér í dag og Ólafur var ekki einungis ánægður með varnarleikinn.
„ Varnarleikurinn var gríðarlega góður en það var sóknarleikurinn líka og heilt yfir var þetta bara gríðarlega góður leikur af okkar hálfu. Við erum virkilega stoltir af strákunum."
Fram tekur á móti Þrótti í næstu umferð og verður það erfiður leikur segir Ólafur.
„Það er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir okkur , við viljum safna stigum. Við getum unnið alla og tapað á móti öllum. Þróttur er gríðarlega gott lið og verðugur andstæðingur"

Athugasemdir