Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 19. júlí 2019 15:15
Brynjar Ingi Erluson
Juventus geymir níuna fyrir Icardi
Mauro Icardi er númer 9 hjá Inter
Mauro Icardi er númer 9 hjá Inter
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Juventus virðist vera nálægt því að ganga frá kaupum á argentínska framherjanum Mauro Icardi en það er Gazzetta dello Sport sem greinir frá.

Juventus hefur verið í viðræðum við Inter um kaup á Icardi en framherjinn er óánægður hjá Inter.

Icardi var frystur í tvo mánuði á síðasta tímabili er hann neitaði að spila gegn Rapid Víenna í Evrópudeildinni í byrjun árs og var þá sviptur fyrirliðabandinu.

Napoli og Juventus hafa sýnt honum mikinn áhuga en svo virðist sem hann sé að ganga í raðir Juventus.

Juventus er að geyma níuna fyrir Icardi en hann er með það treyjunúmer hjá Inter. Gonzalo Higuain var áður með númerið en hann verður númer 21 á komandi leiktíð.

Samkvæmt GdS þá er Icardi búinn að semja um kaup og kjör hjá Juventus en hann gerir fimm ára samning og mun þéna 8 milljónir evra á ári.
Athugasemdir
banner
banner