Enska úrvalsdeildarfélagið Sheffield United er að ganga frá kaupum á Lys Mousset frá Bournemouth.
Mousset er 23 ára gamall framherj en hann ólst upp hjá Le Havre í Frakklandi áður en hann samdi við Bournemouth fyrir þremur árum.
Hann lék 68 leiki og skoraði 5 mörk fyrir Bournemouth en er nú að skipta um félag í úrvalsdeildinni.
Samkvæmt Sky Sports er hann að semja við Sheffield United en hann stóðst læknisskoðun nú rétt í þessu.
Hann mun kosta Sheffield United 9 milljónir punda og verður fimmti leikmaðurinn inn á eftir þeim Phil Jagielka, Ravel Morrison, Callum Robinson og Luke Freeman.
Athugasemdir