Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 19. júlí 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Óvíst hvort Guardiola taki inn varnarmann fyrir Kompany
Pep Guardiola.
Pep Guardiola.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segist ekki vera viss um hvort félagið bæti við varnarmanni í sumar.

Vincent Kompany lagði skóna á hilluna í vor og að undanförnu hefur Harry Maguire, varnarmaður Leicester, verið orðaður við City.

Guardiola ætlar að skoða stöðuna áður en félagaskiptaglugginn lokar 8. ágúst.

„Það er möguleiki (að ég fái varnarmann) en ég veit ekki hvort það verði. Við erum með þrjá góða varnarmenn og Fernandinho sem getur spilað þessa stöðu svo við sjáum til. Við erum mjög ánægðir með hópinn sem við höfum," sagði Guardiola.

„Ég veit ekki hvað gerist í lok félagaskiptagluggans; hvort leikmenn verði áfram hér eða leikmenn komi."
Athugasemdir
banner
banner
banner