Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 19. júlí 2019 19:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Jón Dagur með skemmtilega afgreiðslu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Dagur Þorsteinsson opnaði markareikning sinn með AGF frá Árósum í kvöld er hann skoraði í tapi gegn FC Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni.

Jón Dagur kom inn á sem varamaður í stöðunni 2-0 fyrir FCK. Hann minnkaði muninn á 81. mínútu, en lengra komst AGF ekki.

Jón Dagur slapp í gegn og skoraði með mjög laglegri afgreiðslu. Hann setti boltann yfir markvörð FCK.

Þetta er fyrsta mark Jóns fyrir aðallið AGF í keppnisleik frá því hann gekk í raðir liðsins frá Fulham í síðasta mánuði.

Mark hans í kvöld má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner