Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. ágúst 2018 14:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Brighton og Man Utd: Martial byrjar í stað Sanchez
Mynd: Getty Images
Anthony Martial er kominn inn í byrjunarlið Manchester United sem mætir Brighton í ensku úrvalsdeildinni klukkan 15:00. Jose Mourinho, stjóri Man Utd, var ekki sáttur með Martial á undirbúningstímabilinu en Frakkinn fær að byrja þennan leik.

Alexis Sanchez ferðaðist ekki með United til Brighton en hann er sagður meidur. Auk Martial þá kom Ashley Young og Romelu Lukaku inn í byrjunarliðið fyrir Matteo Darmian og Marcus Rashford.

Paul Pogba er áfram fyrirliði United.

Brighton gerir tvær breytingar á sínu liði. Bruno og Bernando fara út og inn koma Montoya og Bong.

Byrjunarlið Brighton: Ryan, Montoya, Dunk, Duffy, Bong, Propper, Stephens, Gross, March, Knockaert, Murray.

(Varamenn: Button, Kayal, Bissouma, Locadia, Balogun, Jahanbakhsh, Bernardo)

Byrjunarlið Man Utd: De Gea, Young, Lindelof, Bailly, Shaw, Pereira, Fred, Pogba, Martial, Mata, Lukaku.

(Varamenn: Grant, Rashford, Smalling, Lingard, Herrera, Fellaini, McTominay)
Athugasemdir
banner
banner
banner