Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. ágúst 2018 13:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Sonur David Silva nógu hraustur til að fara á völlinn
Silva með syni sínum í dag.
Silva með syni sínum í dag.
Mynd: Getty Images
David Silva er í eldlínunni með Manchester City gegn Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni. Þegar þess frétt er skrifuð er kominn hálfleikur og er staðan 3-1 fyrir Englandsmeisturunum.

Silva hefur átt mjög erfitt síðustu mánuði eftir að sonur hans, Mateo, fæddist löngu fyrir tímann í desember síðastliðnum.

Mateo var mjög veikur og var inn á spítala í fimm mánuði. Manchester City sýndi David Silva mikinn stuðning á þessum erfiðu tímum og gaf Pep Guardiola Spánverjanum allt það sem frí sem hann þurfti.

Mateo er að styrkjast. Heilsa hans er að verða betri og í dag fékk hann tækifæri til að fylgja föður sínum út á Etihad-vellinum og það eru frábærar fréttir.

Hér til hliðar má sjá mynd af feðgunum, en Silva er að spila sinn 250. leik í ensku úrvalsdeildinni.



Athugasemdir
banner
banner
banner