Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. ágúst 2018 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Spánn í dag - Real Madrid mætir til leiks
Real Madrid endaði í 3. sæti á síðasta tímabili, þeir mæta í dag Getafe í fyrsta leik sínum á tímabilinu.
Real Madrid endaði í 3. sæti á síðasta tímabili, þeir mæta í dag Getafe í fyrsta leik sínum á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Spænski boltinn er byrjaður að rúlla aftur eftir sumarfrí, opnunarleikurinn fór fram á föstudaginn og fyrstu umferð lýkur annað kvöld en í dag fara fram þrír leikir.

Í fyrsta leik dagsins fær Eibar nýliða Huesca í heimsókn en flautað verður til leiks klukkan 16:15. Rayo Vallecano sem er einnig nýliði í deildinni tekur á móti Sevilla í kvöld, leikurinn hefst klukkan 18:15.

Lokaleikur dagsins í spænsku úrvalsdeildinni er viðureign Real Madrid og Getafe en leikurinn hefst klukkan 20:15 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Sunnudagur 19. ágúst
16:15 Eibar - Huesca
18:15 Rayo Vallecano - Sevilla
20:15 Real Madrid - Getafe (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner