Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. ágúst 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - 17. umferð klárast í Pepsi Max
Valsmenn mæta Blikum.
Valsmenn mæta Blikum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gleðilegan mánudaginn. Íslenski boltinn heldur áfram að rúlla í dag og eru tveir leikir í Pepsi Max-deild karla.

Í Pepsi Max-deildinni tekur KR á móti Víkingi klukkan 18:00. Fyrir leikinn er KR með þægilegt forskot á toppnum, en Víkingur, sem komst í bikarúrslit í síðustu viku, í tíunda sæti. Víkingur er einu stigi frá fallsæti.

Klukkan 19:15 mætast Breiðablik og Valur á Kópavogsvelli. Breiðablik er með 29 stig í öðru sæti og Valur með 23 stig í sjötta sæti. Með þessum tveimur leikjum klárast 17. umferðin.

Þá eru fjórir leikir í Inkasso-deild kvenna í kvöld.

mánudagur 19. ágúst

Pepsi Max-deild karla
18:00 KR-Víkingur R. (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Valur (Kópavogsvöllur)

Inkasso deild kvenna
18:00 Þróttur R.-Afturelding (Eimskipsvöllurinn)
18:00 Grindavík-Fjölnir (Mustad völlurinn)
18:00 ÍR-FH (Hertz völlurinn)
19:15 Haukar-ÍA (Ásvellir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner