Ethan Ampadu hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Chelsea.
Hinn 18 ára gamli Ampadu er þrátt fyrir ungan aldur kominn í landsliðið hjá Wales.
Á síðasta tímabili spilaði Ampadu sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni með Chelsea.
Hinn 18 ára gamli Ampadu er þrátt fyrir ungan aldur kominn í landsliðið hjá Wales.
Á síðasta tímabili spilaði Ampadu sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni með Chelsea.
„Ég er mjög stoltur og ánægður," sagði Ampadu eftir undirskrift á nýja samningnum.
„Ég hlakka til næstu fimm ára. Núna þarf ég að halda áfram að leggja hart að mér og vonandi koma góðir hlutir í kjölfarið."
Athugasemdir