Mikel Arteta aðstoðarþjálfari Manchester City svaraði spurningum blaðamanna eftir tapið gegn Valencia í kvöld.
Pep Guardiola var rekinn uppí stúku í viðureign sinna manna gegn Liverpool á síðustu leiktíð og var dæmdur í tveggja leikja bann. Hann verður mættur á hliðarlínuna í næsta leik City í Meistaradeildinni.

„Þetta var leikur tveggja hálfleika. Við fengum margar skyndisóknir og á okkur í fyrri hálfleik og á svona háu leveli þá er okkur refsað. Í síðari hálfleik stjórnuðum við leiknum og sköpuðum mörg góð færi. "
„Ég trúði því að við kæmum til baka. Á einhverjum öðrum degi hefðum við komið til baka. Ef þú gefur ódýr mörk þá verður þetta erfitt. Skiptingarnar höfðu áhrif á leikin en það var of seint. "
„Þetta eru svekkjandi úrslit. Við erum vanalega góðir á heimavellli. Nú þurfum við að taka stigin þrjú á útivelli í Lyon. "
Manchester City mætir Cardiff í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.
Athugasemdir