KA heimsótti Stjörnuna á Samsung-völlinn í kvöld og gerði 1-1 jafntefli í 20.umferð Pepsí-deildar karla. Hallgrímur Mar Steingrímsson fyrirliði KA sagði liðið hafa spilað vel og hefði getað klárað þennan leik.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 1 KA
„Mér fannst við spila nokkuð vel, kannski duttum við aðeins of neðarlega í seinni hálfleik. Við fengum klárlega nógu mörg færi til að klára þennan leik fannst mér og heilt yfir góður leikur."
KA hefur misst niður leiki í jafntefli oft í sumar og Hallgrímur segir það áhyggjuefni en hann horfði frekar á spilamennskuna í dag sem honum þótti góð.
„Já auðvitað, ég veit ekki hvað er í gangi hjá okkur, við erum búnir að missa fjóra leiki niður í jafntefli undanfarið en ég horfi frekar á spilamennskuna og hún er góð í dag."
Srdjan Tudegdzig eða Túfa, þjálfari KA er að hætta með liðið eftir leiktíðina, Hallgrímur segir Túfa frábæran þjálfara sem eigi eftir að ná langt og þakkar honum fyrir frábært starf.
„Ég vil ekki tjá mig of mikið um þetta en Túfa hefur frábæra hluti fyrir KA í öll þessi ár, hann er frábær karakter og á eftir að ná mjög langt sem þjálfari, ég er 100% viss um það!"
Athugasemdir