Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mið 19. september 2018 22:28
Magnús Þór Jónsson
Helgi Sig: Þeir voru betri á flestum sviðum fótboltans
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Sigurðsson gat ekki verið sáttur með sína menn í Fylki í 3-0 tapi gegn Breiðabliki í Pepsi-deildinni í kvöld.

„Við vorum ekki nógu góðir í dag, þannig er það. Þeir voru betri á flestum sviðum fótboltans," sagði Helgi í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  3 Breiðablik

Fylkir hafði ekki spilað keppnisleik í 19 daga fyrir leikinn í kvöld. „Það er aldrei ákjósanlegt að spila ekki keppnisleik í 19 daga en ég ætla ekki að kenna því um. Við mættum ekki nægilega vel stemdir inn í þennan leik."

„Það lítur þannig út eins og menn hafi ekki haft trú en það verður líka að hrósa Breiðablik, þeir sýndu meiri baráttu en við. Þá er erfitt að spila gegn eins góðu liði og Blikar eru. Þeir eru góðir í fótbolta og refsuðu okkur."

Næsti leikur Fylkis er gegn KR. Ef Fylkir tapar þeim leik gæti verið von á úrslitaleik við Fjölni í lokaumferðinni um sæti í Pepsi-deildinni.

„Við vitum það að við vorum slakir í dag, þá er eitt að gera fyrir gott keppnislið og það er að rífa sig í gang. Þekkjandi strákanna þá munu þeir gera það."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner