Sampdoria 1 - 1 Fiorentina
0-1 Giovanni Simeone ('13 )
1-1 Gianluca Caprari ('60 )
0-1 Giovanni Simeone ('13 )
1-1 Gianluca Caprari ('60 )
Það var einn leikur á dagskrá í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.
Sampdoria fékk Fiorentina í heimsókn en þetta er leikur sem átti að vera í 1. umferð deildarinnar en honum var frestað eftir hörmulegt brúarslys í Genúa. Sampdoria er staðsett í borginni. Morandi-brúin féll en staðfest hefur verið að 43 manns hafi týnt lífi í þessu hræðilega slysi.
Fiorentina byrjaði betur og kom Giovanni Simeone liðinu yfir á 13. mínútu leiksins með skallamarki. Fiorentina leiddi í hálfleik en heimamenn jöfnuðu þegar klukkutími var liðinn af leiktímanum. Gianluca Caprari jafnaði þá.
Það reyndist síðasta mark leiksins lokatölur 1-1 í þessari viðureign Sampdoria og Fiorentina. Bæði lið eru með sjö stig í fjórða og fimmta sæti deildarinnar.
Athugasemdir