Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 19. september 2018 23:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu laglegt mark Pogba sem róaði taugar Man Utd-manna
Mynd: Getty Images
Paul Pogba var besti maður vallarins þegar Manchester United sigraði Young Boys frá Sviss í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Pogba skoraði tvö mörk í leiknum og lagði upp þriðja markið í 3-0 sigri United.

United byrjaði leikinn illa og voru heimamenn mikið líklegri í byrjun leiksins. Mark frá Pogba á 35. mínútu róaði hins vegar taugar leikmanna og stuðningsmanna Manchester United.

Markið var glæsilegt hjá franska landsliðsmanninum. Smelltu hér til að sjá það. Frábær afgreiðsla!

„Fyrri hálfleikurinn var mjög erfiður. Við byrjuðum ekki vel. Völlurinn var erfiður en við náðum tökum á honum. Pogba sýndi töfra í fyrsta markinu og það róaði okkur," sagði Luke Shaw, bakvörður Man Utd, eftir leikinn.

Sjá einnig:
„Pogba sýndi töfra í fyrsta markinu og það róaði okkur"



Athugasemdir
banner
banner
banner