Fotbolti.net
19.09.23 - 22:32
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Preston á toppnum - Rúnar Alex aftur á bekknum

Milutin Osmajic kom Preston á toppinn

Milutin Osmajic kom Preston á toppinn

Canon

Mynd: Getty Images

Preston North End er á toppnum í ensku B-deildinni með 19 stig eftir fyrstu sjö leikina en liðið lagði Birmingham að velli, 2-1, í kvöld.
Liðið hefur unnið sex leiki og gert eitt jafntefli en endurkoma í síðari hálfleik skóp sigurinn gegn Birmingham.

Jay Stansfield kom Birmingham í forystu strax í byrjun síðari hálfleiks en sjálfsmark Krystian Bielik kom Preston inn í leikinn og gaf það Milutin Osmajic færi á því að gera sigurmarkið á 67. mínútu.

Rúnar Alex Rúnarsson var á bekknum hjá Cardiff City sem vann 3-2 sigur á Coventry. Þetta var annar leikurinn í röð sem Rúnar er á bekknum. Cardiff er með tíu stig eftir sjö leiki.

Southampton, sem féll úr úrvalsdeildinni í maí, tapaði óvænt fyrir Ipswich Town, 1-0, á St. Mary's leikvanginum.

Úrslit og markaskorarar:

Bristol City 4 - 1 Plymouth
1-0 Sam Bell ('3 )
2-0 Matty James ('8 )
2-1 Adam Randell ('26 )
3-1 Mark Sykes ('33 )
4-1 Harry Cornick ('80 )

Cardiff City 3 - 2 Coventry
1-0 Dimitris Goutas ('8 )
1-1 Matthew Godden ('35 )
2-1 Karlan Grant ('61 )
3-1 Kion Etete ('84 )
3-2 Matthew Godden ('90 )

Preston NE 2 - 1 Birmingham
0-1 Jay Stansfield ('46 )
1-1 Krystian Bielik ('51 , sjálfsmark)
2-1 Milutin Osmajic ('67 )

QPR 1 - 1 Swansea
0-1 Josh Ginnelly ('7 )
1-1 Lyndon Dykes ('90 )
Rautt spjald: Oliver Cooper, Swansea ('90)

Sheffield Wed 1 - 1 Middlesbrough
1-0 Anthony Musaba ('38 )
1-1 Darragh Lenihan ('53 )

Southampton 0 - 1 Ipswich Town
0-1 Omari Hutchinson ('30 )
Rúnar Alex sat annan leikinn í röð á bekknum

Rúnar Alex sat annan leikinn í röð á bekknum

Canon

Mynd: Cardiff

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Charlton Athletic3+39
2Wolves3+57
3Swansea3+47
4QPR3+37
5Middlesbrough3+26
6Millwall3+16
7West Brom3+16
8Birmingham3+15
9Watford3+15
10Blackburn304
11Bolton304
12Bristol City3-14
13Cardiff City303
14Sheffield Utd303
15Portsmouth3-13
16Norwich3-13
17Lincoln City3-23
18Southampton3+52
19Wrexham3-12
20West Ham3-12
21Derby County3-41
22Burnley3-51
23Preston NE3-40
24Stoke City3-60
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.