Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. október 2018 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Lallana klár í slaginn gegn Huddersfield
Adam Lallana er klár
Adam Lallana er klár
Mynd: Getty Images
Adam Lallana, leikmaður Liverpool á Englandi, er klár í slaginn gegn Huddersfield um helgina en hann hefur verið frá undanfarið vegna meiðsla.

Lallana, sem er 30 ára gamall, hefur verið að glíma mikið við meiðsli á ferlinum en svo virðist sem hann sé allur að braggast.

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, staðfesti við fjölmiðla í gær að Lallana gæti fengið að spila gegn Huddersfield um helgina en sömu sögu má segja af Virgil van Dijk og Mohamed Salah.

„Það er orðið svolítið að erfitt að dæma um það hvenær hann er hundrað prósent heill og ekki. Hann er búinn að vera frábær á æfingum og hann er að elska að spila fótbolta. Það er auðvelt að njóta þess að horfa á hann á æfingum," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner