Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fös 19. október 2018 11:48
Elvar Geir Magnússon
Sanchez kom til Englands í morgun
Sanchez lenti á Heathrow flugvellinum í morgun.
Sanchez lenti á Heathrow flugvellinum í morgun.
Mynd: Twitter
Reiknað er með því að Marcus Rashford verði í byrjunarliði Manchester United í leiknum gegn Chelsea í hádeginu á morgun,

Alexis Sanchez, sem skoraði sigurmarkið gegn Newcastle í síðustu umferð, mætti loksins til Englands í morgun eftir landsleikjagluggann en hann þurfti að ferðast alla leið frá Síle.

Hann spilaði allan leikinn fyrir Síle í sigri gegn Mexíkó á miðvikudagskvöld og fær skamman undirbúning fyrir leikinn á morgun.

Búist er við því að hann byrji á bekknum á morgun.

Rashford lék með enska landsliðinu í glugganum, hann átti í basli gegn Króatíu en var mjög öflugur í 3-2 útisigrinum gegn Spáni.

United er þegar sjö stigum á eftir Chelsea og nauðsynlegt að vinna sigur á morgun til að halda í við toppliðin.

Chelsea vann 1-0 sigur gegn Manchester United á Stamford Bridge á síðasta tímabili en Alvaro Morata skoraði sigurmarkið.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 30 12 8 10 55 52 +3 44
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 31 9 8 14 32 42 -10 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner