Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. október 2021 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Grealish styrkti fjölskyldu konu sem lést í bílslysi
Mynd: EPA
Jack Grealish leikmaður Manchester City gaf fjölskyldu hinnar 22 ára gömlu Paige Rice, sem lést í bílslysi á dögunum, 5 þúsund pund

Hún var í heimsókn hjá kærastanum sínum í Liverpool er þau lentu í árekstri við taxa. Hún lést á spítalanum skömmu síðar. Kærasti hennar er í lífshættu en taxabílstjórinn er ekki í lífshættu.

Það er ekki vitað til þess að Grealish og Paige hafi þekkst en talið að hann hafi komist í samband við fjölskyldu hennar í gegnum vin sinn.

Grealish deildi mynd af henni og kærasta hennar með skilaboðunum:„Hvíldu í friði Paige"

Athugasemdir
banner
banner
banner