Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. október 2021 06:00
Hafliði Breiðfjörð
NOCCO stofnar afrekssjóð fyrir íþróttafólk
Mynd: Nocco
Leiðin á toppinn er alltaf erfið og kostnaðarsöm fyrir íslenskt afreksfólk og oft erfitt að fá stuðning frá fyrirtækjum eða opinberum aðilum. NOCCO hefur því allt frá árinu 2015 stutt vel við bakið á fjölda íþróttafólks í mismunandi greinum.

Til að vinna enn markvissar í því að styðja við bakið á íslensku afreks íþróttafólki hefur NOCCO stofnað afrekssjóð sem veitir árlega styrki. Allir þeir sem setja markið hátt í sinni íþróttagrein eru hvattir til að sækja um.

„Við fáum mikinn innblástur af metnaði og dugnaði okkar efnilega íþróttafólks. Við viljum vera þátttakendur í þeirra vegferð í átt að velgengni. NOCCO er líklega vinsælasti íþróttadrykkur á Íslandi og því okkur ljúft og skylt að styðja við afreksfólk,“ segir Arnar Freyr Ársælsson markaðsstjóri NOCCO.

Áhugasamir sækja um á nocco.is fyrir 2. nóvember. Þrír einstaklingar verða valdir úr hópi umsækjenda og verður styrkjum úthlutað í nóvember.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner