Mohamed Salah er af mörgum talinn besti leikmaður í heimi þessa stundina.
Hann er allavega sjóðandi heitur inn á fótboltavellinum. Hann var auðvitað á skotskónum í fyrri hálfleiknum gegn Atletico Madrid í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Salah náði mjög merkilegum áfanga með þessu marki. Hann skráði sig á spjöld sögunnar.
Hann er fyrsti leikmaðurinn í sögu þessa merka félags til að skora í níu keppnisleikjum í röð.
Magnaður áfangi hjá þessum magnaða leikmanni.
Salah er þó væntanlega svekktur eftir hálfleikinn því staðan í leikhléi er 2-2. Liverpool náði 2-0 forystu en Atletico kom til baka og jafnaði áður en flautað var til hálfleiks.
9 - Mohamed Salah has become the first player in @LFC history to score in nine consecutive matches for the club. Inevitable. pic.twitter.com/SRNNYCum5Q
— OptaJoe (@OptaJoe) October 19, 2021
Athugasemdir