Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. nóvember 2020 17:30
Elvar Geir Magnússon
Lukaku vill hjálpa Eriksen
Christian Eriksen.
Christian Eriksen.
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku segist vilja hjálpa liðsfélaga sínum hjá Inter, Christian Eriksen, að aðlagast í Mílanó.

Eriksen hefur ekki náð að finna sig hjá Inter en Lukaku segir að sá danski hafi allt til að verða toppleikmaður fyrir félagið.

„Hann hefur alla hæfileika sem þarf til að verða algjör lykilmaður og ég vil hjálpa honum," segir Lukaku.

„Ég var það heppinn að ná að aðlagast fljótt. Ef hann lærir ítölsku þá verður allt auðveldara fyrir hann. Samskiptin verða öll auðveldari og hann mun gefa liðinu meira."

Eriksen hefur ekki náð að finna sig ítalska boltanum og Antonio Conte geymt hann á bekknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner