Fotbolti.net
19.12.22 - 22:40
Brynjar Ingi Erluson

Messi bætti met Ronaldo á Instagram - Nálgast heimsmetið

Lionel Messi

Lionel Messi

Canon

Mynd: EPA

Netgíró
Argentínski fótboltamaðurinn Lionel Messi á nú aðra vinsælustu mynd í sögu Instagram.
Messi birti mynd af sér eftir að hafa unnið HM í fyrsta sinn á ferlinum og mátti sjá mynd af honum með styttuna frægu.

Þetta er í dag önnur vinsælasta mynd í sögu Instagram en þegar þetta er skrifað er hún komin með yfir 50 milljón 'like'. Vinsælasta myndin er reyndar svolítið skondin, en það er mynd af eggi og er sú mynd með 56 milljón 'like'.

Cristiano Ronaldo, aðal keppinautur Messi í gegnum ferilinn, átti fyrir næst vinsælustu myndina er hann birti mynd af sér og Messi fyrir heimsmeistaramótið en hún fékk 42 milljón 'like'. Messi bætti það met örugglega.

Ronaldo getur þó huggað sig við það að enginn í heiminum er með fleiri fylgjendur en hann. Ronaldo er með 519 milljón fylgjendur, á meðan 400 milljónir fylgja Messi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.