Fotbolti.net
19.12.22 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Messi hringdi myndsímtal í Suarez úr klefanum

Messi hringdi myndsímtal í Suarez úr klefanum
Canon

Mynd: Skjáskot

Netgíró
Það var ósvikin gleði í klefa Argentínu eftir að liðið vann Frakkland í úrslitaleik HM í gær. Allir vildu mynd af sér með Lionel Messi en hann fann tíma til að hringja myndsímtal í sinn besta vin.

Í klefanum eftir leikinn, haldandi á heimsmeistarabikarnum, hringdi Messi í Luis Suarez gegnum FaceTime. Úrúgvæski sóknarmaðurinn setti skjáskot á Instagram og skrifaði við „Til hamingju feiti".
Messi og Suarez eru nánir vinir en þeir bjuggu nálægt hvor öðrum í Barcelona í sex ár. Fjölskyldur þeirra eru nánar og vanar því að eyða fríum saman.

Sagt er að Messi vilji ljúka ferlinum í bandarísku MLS-deildinni og getgátur eru um að Suarez gæti farið á undan honum til Inter Miami og stefnan sé að þeir verði þar samherjar á ný. Suarez, sem spilaði með Úrúgvæ á HM, er án félags eftir að samningur hans við Nacional rann út.

Messi og Suarez voru samherjar hjá Barcelona.

Messi og Suarez voru samherjar hjá Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.