Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason lagði upp jöfnunarmark Adana Demirspor í 1-1 jafnteflinu gegn Giresunspor í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.
Birkir lagði upp fyrsta mark Adana gegn Ankaragucu í 3-1 sigri í síðasta leik og sá svo til þess að liðið fengi í það minnsta stig úr leiknum í dag.
Hann byrjaði á bekknum hjá Adana en kom við sögu á 61. mínútu leiksins er liðið var einu marki undir.
Þessi leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi lagði síðan upp jöfnunarmarkið á 84. mínútu fyrir Badou Ndiaye. Þetta var önnur stoðsending Birkis í deildinni á þessu tímabili.
Adana er í 3. sæti deildarinnar með 34 stig eftir nítján leiki.
Athugasemdir