Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 20. janúar 2023 14:28
Elvar Geir Magnússon
L'Equipe: Skriniar búinn að gera munnlegt samkomulag við PSG
Mynd: EPA
Slóvakíski miðvörðurinn Milan Skriniar verður leikmaður Paris Saint-Germain næsta sumar en L'Equipe segir hann hafa gert munnlegt samkomulag við franska stórveldið.

Skriniar er 27 ára og hefur verið hjá Inter síðan 2017, þegar hann kom frá Sampdoria. Hann hefur um margra ára skeið verið einn besti varnarmaður ítölsku A-deildarinnar.

Skriniar hefur hafnað öllum tilboðum Inter um nýjan samning og sagði við félagið að hann myndi ekki skrifa undir á þessum tímapunkti.

PSG hefur horft löngunaraugum til Skriniar í nokkurn tíma en Inter hafnaði tilboðum frá Frakklandi síðasta sumar, í þeirri von að Skriniar myndi framlengja samning sinn sem rennur út í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner