Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 20. janúar 2023 22:58
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Celta tapaði á Mallorca
Mynd: EPA
Mallorca 1 - 0 Celta
1-0 Dani Rodriguez ('59 )

Real Mallorca lagði Celta Vigo, 1-0, í La Liga á Spáni í kvöld.

Celta skapaði sér betri færi í leiknum en nýtti ekki. Dani Rodriguez gerði eina mark leiksins á 59. mínútu með laglegri afgreiðslu úr teignum.

Gestirnir komu boltanum í netið þremur mínútum síðar og töldu sig hafa jafnað leikinn en markið var dæmt af vegna brots í aðdrganda marksins.

Mallorca er í 10. sæti með 25 stig á meðan Celta er í 16. sæti með 17 stig.
Athugasemdir
banner
banner