Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. febrúar 2019 17:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnór Ingvi bíður eftir barni - Leikur við Chelsea á morgun
Arnór Ingvi Traustason.
Arnór Ingvi Traustason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Malmö leikur síðari leik sinn gegn Chelsea í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar annað kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:00 að íslenskum tíma.

Fyrri leikurinn í Svíþjóð endaði með 2-1 sigri Chelsea og hefur því Malmö verk að vinna á Stamford Bridge á morgun, ætli liðið að komast í 16-liða úrslitin.

Arnór Ingvi Traustaon er á mála hjá Malmö, en hann var ekki um borð í flugvélinni sem fór til London í dag. Íslenski landsliðsmaðurinn á nefnilega von á barni með unnustu sinni Andreu Röfn Jónasdóttur.

Það er svolítið síðan barnið átti að koma í heiminn, en settur dagur var fyrir tæpum tveimur vikum.

Malmö vonast til þess að Arnór komi til London á morgun og geti spilað leikinn gegn Chelsea.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner