Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 20. febrúar 2019 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cafu: Vinicus getur skráð sig á spjöld sögunnar
Mynd: Getty Images
Cafu, einn besti hægri bakvörður sögunnar, telur að landi sinn, Vinicius Junior, geti slegið í gegn með Real Madrid.

Vinicius er aðeins 18 ára gamall en hefur fengið nokkrar mínútur með aðalliði Real Madrid á þessu tímabili. Hann hefur þótt standa sig vel þegar hann hefur spilað.

Vinicius var keyptur til Real Madrid frá Flamengo í maí 2017. Real hafði greinilega mikla trú á honum því félagið borgaði rúmar 45 milljónir evra fyrir hann.

„Hann er ekki Cristiano Ronaldo og það er enn mikill munur á þeim tveimur. Cristiano skráði sig á spjöld sögunnar með Real Madrid og Portúgal. Vinicius hefur hins vegar alla burði til þess að skráð sig á spjöld sögunnar hjá Real Madrid," sagði Cafu við spænska blaðið Marca.

„Hann þarf að einbeita sér að fótboltanum, vera ákveðinn og metnaðarfullur."
Athugasemdir
banner
banner
banner