Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. febrúar 2019 16:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísak skrifar undir sinn fyrsta atvinnumannasamning
Ísak Snær Þorvaldsson.
Ísak Snær Þorvaldsson.
Mynd: .
Ísak Snær Þorvaldsson skrifaði í dag undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við enska félagið Norwich.

Ísak Snær er aðeins 17 ára gamall, en er þrátt fyrir það fastamaður í U23 liði Norwich.

Ísak var einn átta leikmanna sem samdi við Norwich, en tilkynningu félagsins má sjá með því að smella hér.

Ísak var áður á mála hjá Aftureldingu en hann hefur leikið með U17, U18 og U19 ára landsliði Íslands. Hefur hann til að mynda gegnt fyrirliðahlutverkinu hjá U17 og U18 landsliðinu.

Ísak er ekki eini Íslendingurinn hjá Norwich, en Húsvíkingurinn Atli Barkarson er þar einnig.
Athugasemdir
banner
banner
banner