Matthías Vilhjálmsson spilaði allan leikinn fyrir Valerenga og skoraði síðasta markið í 3-0 sigri gegn eistnesku meisturunum í Nomme Kalju í æfingaleik í gær.
Leikurinn fór fram á Marbella á Spáni en þar dvelur Valerenga í æfingabúðum og býr sig undir nýtt tímabil í norsku úrvalsdeildinni sem fer af stað 30. mars.
Leikurinn fór fram á Marbella á Spáni en þar dvelur Valerenga í æfingabúðum og býr sig undir nýtt tímabil í norsku úrvalsdeildinni sem fer af stað 30. mars.
Matthías er 32 ára en hann færði sig um set í janúarmánuði þegar hann yfirgaf Rosenborg.
Byrjun hans í búningi Valerenga er lofandi en á dögunum skoraði hann í 1-1 jafntefli gegn rússneska liðinu Rostov í æfingaleik sem einnig fór fram á Marbella.
Þess má geta að Valerenga hafnaði í sjötta sæti norsku deildarinnar í fyrra.
Athugasemdir