Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 20. febrúar 2019 22:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Simeone: Biðst afsökunar ef þetta móðgaði einhvern
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, vakti mikla athygli fyrir fagnaðarlæti sín er Atletico Madrid komst yfir gegn Juventus í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld.

Fagnið hjá honum var skrautlegt svo ekki sé meira sagt.

Sjá einnig:
Sjáðu skrautleg fagnaðarlæti Simeone í kvöld

„Ég viðurkenni að þetta var ekki fallegt, en ég varð að gera þetta," sagði Simeone eftir leikinn sem Atletico vann 2-0.

„Þetta var svo erfiður leikur. Mér fannst ég þurfa að sýna tilfinningar mínar. Ég get bara beðist afsökunar ef þetta móðgaði einhvern. Þetta kom beint frá hjartanu."
Athugasemdir
banner
banner
banner