Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 20. febrúar 2021 07:00
Victor Pálsson
Ancelotti: Veit ekki hvort James kvarti yfir veðrinu
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, neitar því að James Rodriguez sé að reyna að yfirgefa félagið eftir að hafa komið í sumar.

James hefur ekki alveg náð að sýna sínar bestu hliðar hjá Everton en meiðsli hafa þar spilað inn í.

Sögusagnir hafa verið í gangi um að James vilji komast burt en Ítalinn segir að það sé ekkert til í því.

„Hann er í lagi, það eru engin vandamál. Ég ræði við hann á hverjum degi og hann er ánægður," sagði Ancelotti.

„Hann er með sjálfstraust og metnaðarfullur. Hann hefur lent í smá veseni með kálfann en nú er hann í góðu standi."

„Honum líður vel hérna því allir sjá vel um hann og það er allt saman. Ég veit ekki hvort hann kvarti yfir veðrinu en við vitum að það er ekki það besta!"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner