Miðjumaðurinn Daníel Finns Matthíasson hefur skrifað undir nýjan samning við Leikni út 2022.
Leiknismenn komustu upp úr Lengjudeildinni í fyrra og spila í Pepsi Max-deildinni í sumar.
Leiknismenn komustu upp úr Lengjudeildinni í fyrra og spila í Pepsi Max-deildinni í sumar.
„Danni Finns er tvítugur, er uppalinn Leiknismaður og skiljanlega í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum enda algjör gæðaleikmaður," segir á heimasíðu Leiknis.
Daníel lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk Leikni 2016 og í fyrra spilaði hann 15 leiki í Lengjudeildinni og skoraði þrjú mörk.
„Hann mun vafalítið láta ljós sitt skína í Pepsi Max-deildinni í sumar."
Fréttatilkynningar hrannast úr Breiðholti! 😍 Danni Finns hefur skrifað undir samning út 2022. Hrein gæði! #StoltBreiðholts 💥🤙💥 pic.twitter.com/5n9YheyiGE
— Leiknir Reykjavík FC (@LeiknirRvkFC) February 19, 2021
Athugasemdir