Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 20. febrúar 2021 21:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Fulham
Mynd: Getty Images
Fulham 1 - 0 Sheffield Utd
1-0 Ademola Lookman ('61 )

Fulham vann gríðarlega mikilvægan sigur á Sheffield United í fallbaráttuslag í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Fulham var mikið sterkari aðilinn framan af leik en staðan var markalaus í hálfleik.

Eftir stundarfjórðung í seinni hálfleiknum skoraði Ademola Lookman fyrir Fulham. Joachim Andersen átti frábæra sendingu upp völlinn á Lookman sem komst heldur auðveldlega fram hjá Ethan Ampadu og átti skot sem fór á milli fóta Aaron Ramsdale í marki Sheffield United.

Sheffield United vildi fá vítaspyrnu undir lok leiksins þegar Jayden Bogle féll í teignum eftir viðskipti sín við Alphonse Areola, markvörð Fulham. Það var hins vegar ekkert dæmt og sanngjarn sigur Fulham niðurstaðan.

Þetta er rosalega mikilvægur sigur fyrir Fulham sem er núna þremur stigum frá öruggu sæti. Fulham er með 22 stig og Newcastle, sem er í 17. sæti, með 25 stig. Newcastle hefur spilað leik minna en á leik gegn Manchester United annað kvöld. Sheffield United þarft á kraftaverki að halda til að halda sér uppi. Spútniklið síðasta tímabils er á botninum með 11 stig.

Önnur úrslit í dag:
England: Jafnt hjá Southampton og Chelsea
England: Tíu leikmenn West Brom klaufar gegn Burnley
England: Gylfi skoraði í fyrsta sigri Everton á Anfield frá 1999
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner