Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 20. febrúar 2021 16:20
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Alexander Helgason jarðaði Elliða
Miðjumaðurinn öflugi er nýbúinn að framlengja samning sinn við Þrótt til tveggja ára.
Miðjumaðurinn öflugi er nýbúinn að framlengja samning sinn við Þrótt til tveggja ára.
Mynd: Þróttur Vogum
Elliði 1 - 5 Þróttur V.
0-1 Arnar Sigþórsson ('1)
0-2 Alexander Helgason (''6)
0-3 Alexander Helgason ('49)
1-3 Richard Már Guðbrandsson ('59)
1-4 Guðmundur Már Jónasson ('76)
1-5 Alexander Helgason ('86)

Vogamenn rúlluðu yfir Elliða er liðin mættust í fyrstu umferð í B-deild Lengjubikarsins.

Arnar Sigþórsson skoraði fyrsta markið á fyrstu mínútu leiksins og tvöfaldaði Alexander Helgason forystuna skömmu síðar.

Staðan var 0-2 í leikhlé og jók Alexander forystuna í upphafi síðari hálfleiks.

Heimamenn minnkuðu muninn en Guðmundur Már Jónasson gerði út um leikinn fyrir Þrótt áður en Alexander fullkomnaði þrennuna sína.
Athugasemdir
banner
banner