Augnablik og KFG unnu sína leiki í B-deild Lengjubikars karla í dag.
Augnablik, sem er í 3. deild, hafði betur gegn KF, sem kom á óvart með flottum árangri í 2. deild í fyrra. Ísak Eyþór Guðlaugsson skoraði mark Augnabliks en reynsluboltinn Kári Ársælsson fékk að líta rautt spjald í leiknum.
Þá vann KFG stórsigur á Víði, 7-0. Bæði lið leika í 3. deild í sumar. Baldvin Sturluson kom KFG á bragðið og var staðan 1-0 í hálfleik. Í seinni hálfleiknum skoruðu bæði Kristján Gabríel Kristjánsson og Sigurður Bjarni Jónsson þrennu fyrir KFG.
B-deild Lengjubikarsins var bara að fara af stað um helgina og voru þetta fyrstu leikir þessara liða.
Augnablik 1 - 0 KF
1-0 Ísak Eyþór Guðlaugsson
Rautt spjald: Kári Ársælsson, Smári
KFG 7 - 0 Víðir
1-0 Baldvin Sturluson ('26)
2-0 Kristján Gabríel Kristjánsson ('54)
3-0 Kristján Gabríel Kristjánsson ('67(
4-0 Kristján Gabríel Kristjánsson ('70)
5-0 Sigurður Bjarni Jónsson ('82)
6-0 Sigurður Bjarni Jónsson ('83)
7-0 Sigurður Bjarni Jónsson ('89)
Smá skilaboð frá vinum okkar í @Augnablikar því Keli gleymdi passwordinu á þeirr acc.
— Smári FC (@smarifc) February 20, 2021
Það er farið að vora í Fagra. Lengjan byrjuð. KFjallabyggð keyrði í fimm tíma til að tapa 1-0 gegn tíu Augnablikum. Hver fékk rautt? Hver annar en Kári Ársælsson.
Ísak með markið.
Athugasemdir