Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. febrúar 2021 16:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Sævar Atli með þrennu gegn ÍBV
Mynd: Haukur Gunnarsson
Leiknir R. 4 - 1 ÍBV
1-0 Sævar Atli Magnússon
2-0 Bjarki Aðalsteinsson
3-0 Sævar Atli Magnússon
4-0 Sævar Atli Magnússon
4-1 Markaskorara vantar

Leiknir R. fór illa með ÍBV er liðin mættust í Lengjubikarnum í dag.

Sævar Atli Magnússon bar fyrirliðabandið og skoraði þrennu er Breiðhyltingar komust í fjögurra marka forystu. Miðvörðurinn Bjarki Aðalsteinsson komst einnig á blað.

Eyjamenn minnkuðu muninn en komust ekki nær og urðu lokatölur 4-1.

Leiknir er með þrjú stig eftir tvær umferðir. ÍBV er áfram án stiga.

Liðin áttust við í Lengjudeildinni í fyrra og komust Leiknismenn upp í Pepsi Max-deildina á meðan Eyjamenn enduðu óvænt í sjötta sæti.
Athugasemdir
banner
banner