Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. febrúar 2021 17:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sagði James vera í „Gylfa Sigurðsson stöðunni"
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Getty Images
Everton komið 1-0 yfir í nágrannaslagnum gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Það var Brasilíumaðurinn Richarlison sem skoraði markið eftir frábæra sendingu frá James Rodriguez.

Rodriguez er að spila sem sóknarsinnaður miðjumaður hjá Everton á meðan Gylfi Þór Sigurðsson er á bekknum.

Martin Tyler, sem er að lýsa leiknum á Sky Sports, sagði að James væri að spila í stöðu Gylfa á vellinum þegar Richarlison skoraði. Hann talaði eins og Gylfi væri búinn að eigna sér þessa stöðu.

„Það var James Rodriguez í stöðu Gylfa Sigurðssonar sem gerði þetta mögulegt," sagði Tyler þegar Everton skoraði.

„Ekki viss um það hversu vel fyrrum leikmaður Real Madrid og Bayern München, James Rodriguez, kunni að meta það þegar stöðu hans er lýst sem Sigurðsson stöðunni," skrifar Adam Crafton, blaðamaður The Athletic, á Twitter.

Hægt er að sjá markið sem Richarlison skoraði hérna.


Athugasemdir
banner
banner
banner